Þessi niðurfærsla leysir ekkert...

Ég einhvern veginn efast um að þessi niðurfærsla leysi vandamál heimilana.
15-18% er heldur ekki nóg, það þyrfti meira til. en við erum á kúpunni sem þjóð en ég held að þessi Ríkisstjórn vilji bara ekki segja það með berum orðum að við erum GJALDÞROTA þjóð.

Ætli það sé ekki eina leiðin er að setja sjálfan sig í gjaldþrot?
ég ætla ekki að sitja eftir með 10 milljónir á bakinu í húsnæðislán bara vegna þess að einhverjir fábjánar voru að leika sér.

ástæðan ég segi 10milljónir....jú, sko, ég tók 14.8 milljónir í húnnæðislán 2007 (íslenskt) ég borgaði út rúmar 3.5 milljónir af sparifé mínu í gegnum árin sem ég safnaði, ég gat vel borgað af láninu mínu og gott betur en það, svo kom hrunið, vinnan mín fór á hausinn og ég varð atvinnulaus, fékk frystingu á íbúðina hjá Íbúðalánasjóði, ég er búinn að frysta 2var og á möguleika á einni í viðbót, í dag stendur lánið mitt í 22/23 milljónum, (mig langar bara ekkert að kíkja hvað það stendur í einu sinni) ef ég frysti það einu sinni enn þá verður það komið í 25 milljónir, og íbúðin mín gæti mögulega selst á 15 milljónir...og þar með sit ég og mín fjölskylda með 10 milljónir á bakinu vegna íbúðarinnar, konan mun vera með 4 millur í námslán á bakinu og við höfum misst okkar eignarhlut í íbúðinni og okkar 3.5 milljónum sem við áttum.

Ég veit ekkert hvað framtíðin býður upp á, ég veit ekkert var við búum eftir 1-2-3 ár. þetta er ekki gott fyrir börnin okkar að þurfa að flytja og breyta um skóla og annað rugl.

í sannleika sagt þá er ég bara orðinn örþreyttur á að hafa endalausar fjárhagsáhyggjur, ég er bara kominn með nóg, og haldið þið að þessi ömurlegu friðsælu mótmæli muni ganga endalaust áfram og ekkert gerist nema fólk á þessu þingi skipi nefndir og spjalli saman og svo kemur ekkert útúr því!

Ég segi NEI, ég nenni ekki að bíða lengur, þetta er komið út í algjört rugl, maður er búinn að vera reyna að halda sönnsum hér, en allsstaðar er sorinn svo mikill í þessu þjóðfélagi að maður er kominn með ógeð og að sjá þessa gráhærðu kellingu þarna gapandi og vita varla í hvorn fótin hún að stíga eða segja neitt að viti og svo herra Blabla(Steingrímur) kjaftandi hundstík með sína milljón+ á mánuði og allt í besta lagi. éttu bara skít fyrst að ég þurfi bráðum að fara éta það sem úti frýs.

Er þetta eitthvað land sem mig langar að bjóða börnum mínum að búa í, í framtíðinni?

Afhverju er ég ekki farinn erlendis, ég veit það ekki, kannski af því að ég er heimakær, kannski er bara fjölskyldan ekki tilbúin til þess.

En þessi niðurfærsla leysir engan vanda því ÞETTA ER EKKI NÓG.
svo skil ég ekki afhverju Íbúðalánasjóður megi ekki leigja út sínar íbúðir??????

Ég er bara orðinn örþreyttur, nenni þessu ekki, er eitthvað skrítið að fólk sé að gefast upp á þessu öllu saman? á maður bara að gefa skít í þjóðfélagið hér, gefa því puttann?

mbl.is Almenn niðurfærsla skulda ólíkleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við skulum reyna eygja von. Þó ríkisstjórnin hjálpi ekki þá kemur dagur eftir þennan dag. Og ég veit hann verður bjartari en dagurinn í gær. Auðvitað er ekki gaman að standa endalaust í þessu streði, en við erum jú Íslendingar og þekkjum vart annað. Við megum ekki missa trúna á að þetta lið á Alþingi nái einhvern daginn að vinna vinnuna sína, en á meðan við bíðum megum við ekki gleyma því hvað það er margt yndislegt í veröldinni okkar :) Börnin....fjölskyldan....og einn daginn kemur betri tíð!

assa (IP-tala skráð) 15.10.2010 kl. 02:16

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þakka þér fyrir að deila sögu þinni Arnar Bergur.  Það er hverju orði sannara hjá þér að 15 - 18% niðurfærsla er ekki nóg.  Hvað þá fyrir þá sem hafa misst vinnuna.  Maður spyr sig er verðtryggingin bara fyrir lánastofnanir, hvers vegna er hlutur þinn í íbúðinni ekki verðtryggður.

Megi þér og þinni fjölskyldu ganga vel, hvaða stefnu sem þið takið.

Magnús Sigurðsson, 15.10.2010 kl. 07:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnar Bergur Guðjónsson

Höfundur

Arnar Bergur Guðjónsson
Arnar Bergur Guðjónsson
Ungur maður sem hefur sínar eigin skoðanir á málefnum líðandi stundar, hvort sem þau eru vitlaus eða ekki :) Er einnig forfallinn fótboltaaðdáandi

Færsluflokkar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Norðurljós yfir Kleifarvatni
  • Silfurský
  • Norðurljós fyrir Gróttu 16 Feb 2010

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 544

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband