23.6.2011 | 22:34
Steingrímur...elsku kallinn...
Þú getur ekki borðið saman verð á eldsneyti hér á fróni og í noregi og þar í kring.
laun í noregi eru margfalt betri en hér heima. hér eru laun lág.
En þú ert líka kolruglaður Steingrímur og ættir að segja af þér.
Þú ert ekki í takt við raunveruleikan hjá fólki í dag þar sem þú hefur þína rúma milljón á mánuði.
Ég er til í grísk og frönsk mótmæli
ég er meira en til í það.
Ég hef fengið nóg
laun í noregi eru margfalt betri en hér heima. hér eru laun lág.
En þú ert líka kolruglaður Steingrímur og ættir að segja af þér.
Þú ert ekki í takt við raunveruleikan hjá fólki í dag þar sem þú hefur þína rúma milljón á mánuði.
Ég er til í grísk og frönsk mótmæli
ég er meira en til í það.
Ég hef fengið nóg
Álögur á eldsneyti lækka ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Arnar Bergur Guðjónsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nákvæmlega.
Að taka eldsneytisverð í nágrannalöndunum og setja það fram í ísl krónum og segja að eldsneytið sé dýrara þar er hæpin fullyrðing sérstaklega þar sem frændur okkar á norðurlöndum borga ekki fyrir eldsneytið í íslenskri mynt sem hefur hrunið um tugi prósenta undanfarið. (í og eftir hrun).
Gott líka að athuga byrjunarlaun í nágrannalöndunum... umbreyta þeim í íslenskar krónur ... þá kannski lítur þetta "reikningsdæmi" aðeins öðruvísi út.
Að hlusta á fjármálaráðherra láta þetta út úr sér í kastljósinu í kvöld ................
ThoR-E, 23.6.2011 kl. 23:23
Að taka eldsneytisverð í nágrannalöndunum og setja það fram í ísl krónum og segja að eldsneytið sé dýrara þar er hæpin fullyrðing
Eigum við ekki að gera það sama um launin okkar og spyrja hann afhverju við erum með svona rosalega lág laun þá!!!
Halldór Björgvin Jóhannsson, 23.6.2011 kl. 23:26
Nú verður að koma þessum valdaróna frá.
Jón Steinar Ragnarsson, 23.6.2011 kl. 23:44
Tek undir með ykkur hér að ofan. Það þarf að leysa Steingrím fjármálaráðherra frá völdum. Allir einstaklingar sem klárað hafa sex ára bekk geta staðið sig betur í fjármálastjórn landsins en hann.
Sumarliði Einar Daðason, 24.6.2011 kl. 00:36
Ég fer ekki ofan af því að eini raunhæfi kostur launþega í kjaramálum er VERÐTRYGGING LAUNA STRAX! Öll gjaldahlið heimilisreksturs er verðtryggð og gengistryggð í bak og fyrir en tekjuhliðin ótryggð. Þetta misræmi getur aldrei gengið upp og er skólabókardæmi um fáránlega hagstjórnun. Vekið helv.... verkalýðsforystuna til þessarar kröfu!
corvus corax, 24.6.2011 kl. 07:34
Bensín verðið hérna í Noregi er lægra í íslenskum krónum reiknað yfir á Seðlabankagenginu, Steingrímur kann einfaldlega ekki að segja satt. Algengt tímakaup er um 3.500 kr á tímann, já og hvort sem þið trúið því eða ekki þá eru skattarnir lægri en á Íslandi að teknu tilliti til þess að lífeyrissjóðsiðgjöld er hluti skatta.
Magnús Sigurðsson, 24.6.2011 kl. 12:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.